TRE® er áhrifarík leið til að takast á við líkamlega og andlega streitu

Lærðu TRE á öruggan hátt í gegnum netið með vottuðum leiðbeinanda.

Skráðu þig hér!

Hvað er TRE®?

TRE® (Tension, Stress & Trauma Release) er ný leið til að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli PhD til að virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því að leyfa líkamanum að skjálfa eða titra þannig að losni um vöðvaspennu og  taugakerfið róist. Með því að virkja þessi náttúrulegu viðbrögð líkamans, þ.e. með því að skjálfa og titra, í öruggu og stýrðu umhverfu, er verið að hvetja líkamann til þess að ná aftur fyrra jafnvægi, eða að nálgast slökun eftir langvarandi spennu.

"Sá þetta TRE námskeið auglýst fyrir tilviljun og það vakti athygli mína þar sem ég hafði stuttu áður velt því fyrir mér hvort ákveðnir verkir, til margra ára, spenna, streita og kvíði væru eitthvað sem ég hreinlega geymdi í líkamanum og gætu m.a. tengst áföllum. Ég mætti því forvitin á þetta námskeið, en ekki með neinar væntingar, ákvað samt að vera opin fyrir þess og gefa þessu tækifæri. Það virkaði vel á mig hvað leiðbeinandinn, hún Svava var einlæg, tilgerðarlaus og kom efninu skýrt og áreynslulaust frá sér. Þegar ég vaknaði morgunin eftir fyrsta dag námskeiðsins, tók ég strax eftir að ég var miklu afslappaðri en venjulega og djúpstæð kyrrð og ró var innra með mér. Ég var líka með mun minni verki í líkamanum allan þennan dag. Ég mætti því full af áhuga í næsta tíma og heyrði þar fleiri segja frá svipaðri reynslu. Þessi frábæra tækni er verkfæri sem ég mun nýta mér í framtíðinni og er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast TRE."

Guðrún Vilhjálmsdóttir

"Kærar þakkir fyrir þetta góða námskeið. Fyrir mig hefur þetta styrkt mig í að hlusta á líkamann og þau einkenni sem hann gefur. Treysta á líkamann og efla þessa tjáningu og skilning milli hugar og líkama. Kenndi mér líka að horfast meira í augu við hvað streitukerfið mitt er orðið spennt og viðkvæmt. Hlakka til að nota þetta meira til að efla þessa tengingu enn meir og gefa líkamanum færi á að losa um spennu og segja mér hvernig staðan er."

Sólveig Klara Káradóttir
Hjúkrunarfræðingur, Diploma í geðhjúkrun, Dáleiðari og EMDR meðferðaraðili

"Við erum bæði mjög ánægð með námskeiðið og þína hlýju og skýru kennslu. Við erum heilluð af þessari aðferð og hún er klárlega komin í verkfærakistuna. Jógastúdían okkar síðustu árin hefur byggt á að fara inná við og skynja djúpt og hlusta á líkamann. Að fá aðgengi að þessari eðlislægu leið líkamans og taugakerfisins til að losa um spennu, sem hugurinn hefur ekki aðgang að, hefur reynst okkur mögnuð viðbót. Viska líkamans færi að njóta sín til fulls og með hverri iðkun dýpkar samtalið, traustið og vináttan milli hugar og líkama."

Sóley og Sigurbjörn

"TRE námskeiðið var frábær reynsla. Ég öðlaðist nýjan og dýpri skilning í að hlusta á mörkin mín og fara eftir þeim. Mér leið öruggri undir handleiðslu Svövu og kunni virkilega vel að meta áherslur hennar á að skapa innra öryggi til þess að geta átt greiðari aðgang að sjálfri mér. "

María Arnardóttir

"I took a three-class series with Svava to learn TRE and it was extraordinary - both with the practice and working with her. Svava's first hand experiences and gifts as a teacher made all the difference in understanding and accepting this practice, which is already having a positive impact on my well-being. Can't recommend more highly!"

Cloie Cohen

"I started doing TRE after watching YouTube videos. But I thought I should take a class and learn more because it was very much resonating with what I needed at the time. I’m so glad that I took Svava’s class! There was so much more to doing the exercises correctly and safely than what those videos had shown. Understanding the tension and relaxation is important, but Svava helped me understand how the process works and to be gentle with my progress. I overdid it a couple times but Svava was able to show me how to move forward and progress in a safe manner. Knowing that I had overdone it she checked in with me repeatedly. I highly recommend Svava as a support and guidance leader and TRE practitioner."

Kat Livingston

"I recently signed up for Svava's Tension Release Exercise (TRE) class in hopes of finding an efficient way to handle work (and life) stress. The exercises are not difficult, there are adjustments available for most ability levels, and the outcome is a general sense of calm. I look forward to practicing TRE as a part of my new and improved regimen of self-care since being treated for cancer. As for Svava Brooks, I found her to be an intuitive and gentle instructor with extensive knowledge of TRE practice. If you have any interest in TRE, check it out! If nothing else, you will appreciate getting to know Svava. "

Talemi Mike

Hver getur notið góðs af TRE®?

TRE® byggir á þeirri grundvallarhugmynd, sem studd er af rannsóknum, að streita, spenna og áföll séu bæði andleg og líkamleg. Ósjálfráður vöðvaskjálfti samkvæmt TRE® framkallar almennt þægilegar og róandi tilfinningar. Margir einstaklingar lýsa tilfinningu um vellíðan og friðsæld eftir að hafa prófað TRE®.

Þar sem skjálfti í vöðvum er hluti af náttúrulegum viðbrögðum mannslíkamans geta allir notið góðs af þessari aðferð. Vöðvaskjálfti/titringur eykur þol líkamans vegna þess að hann leiðir til djúprar slökunar sem dregur náttúrulega úr streitu. Hann getur einnig losað um tilfinningar þannig að einstaklingar geta komist í vægt uppnám og allt yfir í alvarlegan kvíða hvort sem það er af völdum  streitu sem tengist vinnu, óhóflegum áhyggjum, átökum í sambandi, líkamlegs álags eða áföllum vegna slysa.

TRE® getur gagnast öllum hvort sem það eru foreldrar/makar sem vilja sýna meiri þolinmæði gagnvart fjölskyldu sinni, fórnarlömb ofbeldis eða slyss, hermenn sem þjást af PTSD, íþróttafólk eða einfaldlega einstaklingar sem vill öðlast meiri seiglu í lífsins glímum og líða betur á líkama og sál.  

Vöðvaskjálftinn sem kallaður er fram með TRE® æfingunum/ferlinu eru eðlileg tauga- og lífeðlisfræðileg viðbrögð líkamans til að draga úr eigin streitu og til að komast í vellíðunarástand.

TRE® byggir á líkamlegu ferli sem, þegar því er beitt á réttan hátt undir leiðsögn vottaðs TRE® leiðbeinanda, getur hjálpað einstaklingum við að losa um spennu í líkamanum án þess að viðkomandi þurfi að endurupplifa orsökina fyrir spennunni (þ.e.a.s. ekki er nauðsynlegt að tala um, muna eftir eða lýsa áfallinu eða reynslunni).

TRE® er hægt að kenna annaðhvort sem einfalt sjálfshjálpartæki, til að minnka spennu í líkamanum, sem hluti af líkamsræktarprógrammi eða sem viðbót við aðrar meðferðir og með því að samþætta aðferðum með öðrum meðferðarleiðum. TRE® má til dæmis nota í meðferð ráðgjafa í meðferð við áföllum og áfallastreituröskun sem og kvíðaröskun.  

Hvernig vinnur TRE með öðrum aðferðum?

TRE® er kennt og notað sem sjálfshjálpar verkfæri, til að minnka spennu í líkamanum, sem hluti af líkamsræktarprógrammi eða sem viðbót við aðrar meðferðir.

Nánari upplýsingar um TRE hóptímana

Hvenær: 4 vikur á mánudögum.

 8. 15. 22. og 29. apríl, 2024

Tími: Hver tími er 90 mínútur frá kl. 16.15 - 17.45

Staðsetning: Heima hjá þér í gegnum netið. Við munum nota zoom.

Verð: 29.900 kr 

Takmarkað pláss. 

Innifalið: Þátttakendur fá bækling á íslensku sem inniheldur æfingarnar og góðar leiðbeiningar um TRE. Bæklingurinn verður sendur til þín með póstinum.

Tímarnir eru teknir upp og hafa þátttakendur aðgöngu að upptökum 30 daga eftir að námskeiðinu líkur.

Fyrir hvern: Þetta námskeið er ætlað byrjendum, en einnig opið fyrir þá sem vilja ná betur tökum á að virkja skjálftann og/eða vilja fara hægt af stað eftir að hafa tekið pásu frá TRE. 

Ef þú ert að takast á við stór áföll í lífinu, kulnun, eða "burnout" þá mæli ég með einkatíma áður en þú skráir þig á hópnámskeið. Nánari upplýsingar hér https://www.svavabrooks.com/tre

Áhrif:
  • Minnkar áhyggjur og kvíða
  • Dregur úr einkennum áfallastreituröskunnar
  • Eykur orku og þrek
  • Bætir samskipti
  • Minnkar streitu á vinnustað
  • Bætir svefn
  • Minnkar vöðva- og bakverki
  • Eykur sveigjanleika
  • Aukin „tilfinningaseigla“
  • Dregur úr áhrifum óbeinna áfalla
  • Græðir gömul meiðsli
  • Dregur úr kvíða í tengslum við alvarleg veikindi 
  • Minnkar átök í samböndum
  • Bætir líðan þeirra sem glíma við langvarandi sjúkdómsástand

Nánari upplýsingar um námskeiðið gefur Svava hjá [email protected].

Eftir skráningu færðu sendan spurningarlista og upplýsingar um hvernig best er að undirbúa þig fyrir TRE námskeiðið.

Helstu spurningar og svör um TRE https://traumaprevention.com/frequently-asked-questions/

"The inner development of compassion caring and sensitivity to the pain of humanity emerges as a result of recovering from one's own painful experiences of life."

David Berceli, Creator of TRE®

Það sem við munum fara yfir saman:

Á þessu námskeiði lærir þú

Grunn-atriði TRE® sjálfstjórnun. Við munum við fara saman yfir TRE aðferðina og ræða mikilægi sjálfstjórnunar. Þegar við förum saman í gegnun æfingarnar til að virkja skjálftann í líkamanum, æfum við okkur í að stöðva skjálftann og hlusta á líkamann.

Streituskalinn. Við munum æfa okkur í að vera meðvituð um hvernig okkur líður, hvar við erum á streituskalanum og hvernig við getum greint ef við erum tilbúin fyrir TRE.  

Núvitund og TRE®. Þegar við byjum að vinna með ósjálfráða taugakerfið er mikilvægt að æfa núvitund til að vera meðvitaður um hvað er að gerast í huga og líkama. Við munum fræðast um streytu viðbrögð líkamans og leiðir til að vera hlutlaus gagnvart því sem þú upplifar með áhrifum TRE.

Flökkutaugin. Við munum fræðast um þessa mikilvægu taug og hvernig við getum styrkt þessa tengingu við líkaman og líðann. 

Minna er meira þegar kemur að iðkun TRE®. TRE® er verfæri sem dýpkar tengingu við huga og líkama og virkar mjög vel samhliða öðrum aðferðum sem vinna að andlegri og líkamlegri heilsu. Við ræðum við hvernig best er að nota TRE samhliða öðrum úrræðum.

Við hverju má búast við reglulega notkun TRE®. Vöðvaskjálftinn sem kallaður er fram með TRE® æfingunum/ferlinu eru eðlileg tauga- og lífeðlisfræðileg viðbrögð líkamans til að draga úr eigin streitu og til að komast í vellíðunarástand.

TRE er ekki skyndilausn. Við förum hægt af stað í ferlið og hver og einn finnur sinn hraða og sína leið til að vinna með líkamann sinn.TRE er kennt sem sjálfshjálparverkfæri. Með því að kalla á þessa meðfæddu getu líkamans, hjálpar TRE við að losna við verki, streitu og áföll ásamt því að vera einföld leið til að minnka áhrif af daglegu álagi og stressi og byggja upp seiglu.


TRE® byggir á líkamlegu ferli sem, þegar því er beitt á réttan hátt undir leiðsögn vottaðs TRE® leiðbeinanda, getur hjálpað einstaklingum við að losa um spennu í líkamanum án þess að viðkomandi þurfi að endurupplifa orsökina fyrir spennunni (þ.e.a.s. ekki er nauðsynlegt að tala um, muna eftir eða lýsa áfallinu eða reynslunni). 

Vottaður Leiðbeinandi

Svava Brooks er vottaður TRE® ráðgjafi síðan 2017.  Svava hefur unnið með sjálfshjálparhópum á vegum einkafyrirtækja, stofnana og grasrótarsamtaka síðastliðin 9 ár, við forvarnir gegn kynferðisofbeldi síðastliðin 15 ár og skrifar um heilun og líf eftir ofbeldi á bloggsíðunni http://www.svavabrooks.com

 

TRE® er hannað sem sjálfshjálpartæki sem einstaklingar geta nýtt sér eftir að þeir hafa tileinkað sér aðferðina eins oft og þörf er á og í gegnum allt lífið. Þannig stuðlar aðferðin að heilbrigðri sjálfsmynd og andlegu heilbrigði.  

Skráðu þig hér!
Close

50% Complete

Two Step

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua.